Hluthafafundur í SPRON  [ SPRON ] verður haldinn á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík, miðvikudaginn 6. ágúst 2008, að því er fram kemur í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Fyrir fundinn verður lögð tillaga um að staðfesta samrunaáætlun stjórnar félagsins og Kaupþingsbanka.

Samruninn er bundinn þeim skilyrðum að hluthafafundur í SPRON samþykki hann, að Fjármálaeftirlitið samþykki hann og að samkeppnisyfirvöld ógildi hann ekki eða setji honum skilyrði sem stjórnir félaganna telja óviðunandi eða leiði til þess að óhjákvæmilegt sé að leggja ákvörðun um hann að nýju fyrir hluthafafund í SPRON.

Samrunaáætlunar sem var samþykkt af stjórnum félaganna 1. júlí síðastliðinn.