Á þriðja ársfjórðungi 2009 voru að meðaltali 10.900 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 6% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 6,5% hjá körlum og 5,4% hjá konum.

Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar. Þegar litið er til aldurs var atvinnuleysið mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára, eða 12,3%. Frá þriðja ársfjórðungi 2008 til annars ársfjórðungs 2009 fjölgaði atvinnulausum um 6.100 manns.

Á þriðja ársfjórðungi 2009 höfðu 4.100 atvinnulausir annað hvort fundið vinnu sem hefst síðar eða leitað í tvo mánuði eða skemur sem var svipaður fjöldi og árið áður. Þeim sem höfðu leitað að vinnu í 3 mánuði eða lengur fjölgaði úr 700 í 6.800 frá þriðja ársfjórðungi 2008 til þriðja ársfjórðungs 2009.

Starfandi fólki fækkar um 12.300 og atvinnuþátttakan var 82,1%

Fjöldi starfandi á þriðja ársfjórðungi 2009 var 171.500 manns og fækkaði um 12.300 frá sama tíma ári áður. Á vinnumarkaði voru alls 182.500 manns sem jafngildir 82,1% atvinnuþátttöku.

Þá var meðalfjöldi vinnustunda 40,9 klst. hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni. Meðalfjöldi vinnustunda hjá þeim sem voru í fullu starfi var 45,3 klst. en 23,9 klst. hjá þeim sem voru í hlutastarfi.

Á þriðja ársfjórðungi 2008 var meðalfjöldi vinnustunda 43,6 klst., 48,2 klst. hjá körlum en 37,7 klst. hjá konum. Þeir sem voru í fullu starfi unnu 47,1 klst. að jafnaði en þeir sem voru í hlutastarfi unnu að jafnaði 25,4 klst.

Sjá nánar á vef Hagstofunnar.