Hagnaður Landsbankans fyrir tímabilið janúar ? júní 2004 nam 7.426 milljónum króna fyrir skatta, en að teknu tilliti til skatta og hlutdeildar minnihluta nam hagnaðurinn 6.035 milljónum króna. Hagnaður bankans fyrir skatta á fyrstu sex mánuðum ársins 2003 nam 1.439 milljónum króna og 1.221 milljón króna eftir skatta. Arðsemi eiginfjár eftir skatta á fyrri helming ársins 2004 var óvenju góð eða 54% samanborið við 16% fyrir sama tímabil á fyrra ári. Kostnaðarhlutfall bankans var 40% á tímabilinu, en bankinn hefur það að markmiði að kostnaðarhlutfall sé á hverjum tíma undir 55%. Vaxtamunur sem hlutfall af meðalstöðu heildarfjármagns minnkaði líkt og þrjú undanfarin ár og var 2,58% á fyrstu sex mánuðum ársins 2004 samanborið við 2,75% fyrir sama tímabil á árinu 2003 og 2,62% á öllu árinu 2003.

Rekstur Landsbankans á fyrstu sex mánuðum ársins 2004 gekk mjög vel. Mikill innri vöxtur hefur einkennt þróun bankans síðustu mánuðina og hafa heildareignir hans tvöfaldast frá lokum fyrsta ársfjórðungs 2003. Þetta hefur skilað sér í aukinni stærðarhagkvæmni og hafa hreinar vaxtatekjur bankans aukist umtalsvert á sama tíma og vaxtamunur bankans hefur farið lækkandi. Samhliða mikilli aukningu heildareigna og styrkingu bankans á fyrirtækjamarkaði hefur Landsbankinn treyst stöðu sína á sviði verðbréfaviðskipta, eignastýringar og sérbankaþjónustu og hefur það leitt til verulegar aukningar þóknunartekna af þeim starfsþáttum.

Framlag í afskriftareikning fór niður fyrir 1% á tímabilinu og reiknaðist 0,92% af stöðu útlána í lok júní 2004. Í uppbyggingu sinni hefur bankinn lagt áherslu á vandaða og hraða ákvörðunartöku við afgreiðslu útlána, auk þess sem útlánaeftirlit og áhættustýring hafa verið efld til muna.

Heildareignir Landsbankans námu 558 milljörðum króna í lok júní 2004 og hafa þær aukist um 25% eða 110 milljarða króna á fyrstu sex mánuðum ársins 2004. Útlán bankans voru 432 milljarðar króna í lok júní 2004 samanborið við 326 milljarða króna í upphafi ársins og hafa þau aukist um 106 milljarða króna eða 32% það sem af er ári. Þar af nemur aukning vegna erlendrar starfsemi bankans og lána móðurfélagsins til erlendra aðila 40 milljörðum króna og námu lánin 24% af heildarútlánum samstæðunnar í lok júní 2004 samanborið við 20% í ársbyrjun og hafa þau aukist um 63% á tímabilinu.

Með aukinni stærðarhagkvæmni og tekjumyndun ásamt lækkandi framlögum í afskriftareikning, sterkari eiginfjárstöðu og hagstæðri fjármögnun hefur bankinn skapað forsendur fyrir áframhaldandi vöxt í starfsemi sinni. Vöxtur og arðsemi erlendra dótturfélaga bankans hefur verið góð, þó vöxtur samstæðunnar hafi verið mestur á innlendum markaði til þessa.