Rekstrarniðurstaða A-hluta Reykjavíkurborgar var neikvæð um 996 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum ársins en áætlun gerði ráð fyrir að hún yrði neikvæð um 1.522 milljónir króna á tímabilinu. Niðurstaðan er því betri en gert var ráð fyrir, sem nemur 526 milljónum króna. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var neikvæð um 53 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir neikvæðri niðurstöðu um 1.426 milljónir króna, eða 1.373 milljóna króna betri niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir. Þetta kemur fram í óendurskoðuðum árshlutareikningi Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar til júní 2011 sem lagður var fram á borgarráði í dag.

Betri rekstarniðurstaða Aðalsjóðs en búist  var við

Rekstrarniðurstaða Aðalsjóðs var neikvæð um 269 milljónir króna en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir að niðurstaðan yrði neikvæð um 3.174 milljónir króna og var niðurstaðan því um 2.905 milljónum króna betri en áætlað var. Helsta skýringin á betri afkomu felst í því að tekjur eru 1.613 milljónir króna yfir áætlun og nettó fjármunatekjur eru 1.722 milljónir króna yfir áætlun. Rekstrarútgjöld eru hins vegar 430 milljónir króna yfir áætlun. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var neikvæð um 3.841 milljónir króna sem er 1.183 milljóna króna betri niðurstaða en áætlað var.

6 milljarða lakir rekstrarafkoma

Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A og B hluta, var neikvæð um 5.373 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 868 milljónir króna. Viðsnúning m.v. áætlun er einkum að finna í fjármagnsliðnum sem var neikvæður um 13.395 milljónir króna einkum vegna gengistaps. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 6.863 milljónir króna sem er um 2.052 milljóna króna betri niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir.

Grunnrekstur Reykjavíkurborgar er í góðu jafnvægi miðað við fjárhagsáætlun tímabilsins af því er fram kemur í fréttatilkynningu. Þar segir að fjárhagslegur styrkur A-hluta borgarsjóðs er mikill hvort sem litið er til eiginfjárstöðu eða hefðbundinna skuldaþekjuhlutfalla eins og fram kemur í þessu uppgjöri.