Háskóla Íslands bárust hátt í 1.800 umsóknir um grunn- eða framhaldsnám fyrir komandi vormisseri og eru þær um það bil 60% fleiri en á sama tíma í fyrra. Reikna má með að um 16 þúsund nemendur verði í skólanum á næsta ári. Háskóli Íslands hefur tekið inn nemendur í takmarkaðan hluta námsleiða í grunn- og framhaldsnámi á vormisseri ár hvert.

Umsóknarfresti um grunnnám lauk 30. nóvember sl. og bárust skólanum alls 617 umsóknir. Það er um 50% fleiri umsóknir en á sama tíma í fyrra þegar þær voru 414. Framlengdum umsóknarfresti um framhaldsnám lauk 31. október en þó var hægt að sækja um innritun í tilteknar námsleiðir til viðbótarnáms á meistarastigi til 30. nóvember.

Nú liggur fyrir að samanlagður fjöldi umsókna á framhaldsstigi er tæplega 1.150 en hann var tæplega 680 í fyrra. Fjölgun umsókna í framhaldsnámi nemur því nærri 70% milli ára og heildarfjölgun umsókna um nám við skólann á vormisseri nærri 60% á milli ára sem fyrr segir. Tekið skal fram að inni í þessum tölum eru ekki umsóknir um doktorsnám.

Þessi mikli áhugi á námi við Háskóla Íslands kemur í kjölfar metfjölda umsókna sem skólanum barst í vor og helgast að líkindum af áhrifum kórónaveirunnar á íslenskt samfélag og atvinnulíf. Margir hafa kosið að sækja sér frekari menntun og efla þannig stöðu sína í því erfiða atvinnuástandi sem ríkir í landinu.

Metfjöldi stundar nú nám við Háskóla Íslands eða tæplega 15.000 manns. Miðað við þann fjölda umsókna sem Háskólanum barst fyrir vormisseri má reikna með að nemendafjöldi við skólann verði vel í kringum 16 þúsund á nýju ári.

„Af þessari miklu fjölgun umsókna sést hversu mikilvæg stofnun Háskóli Íslands er í íslensku samfélagi,“ segir Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands.

„Skólinn býður upp á nám sem svarar kalli tímans. Við tökum fagnandi á móti nýjum nemum en minnum stjórnvöld jafnframt á mikilvægi þess að fjármagna þessa fjölgun. Við Háskóla Íslands höfum við gæði starfsins að leiðarljósi og til að viðhalda gæðum er nauðsynlegt að starfsemin sé fjármögnuð.“