Sex bankastjórar voru með 324 milljónir króna í laun og fjórir stjórnarformenn voru 180 milljónir króna á árinu 2004. Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri KB banka var launahæstur bankastjóranna með hátt í 100 milljónir króna í laun á síðasta ári, Sólon R. Sigurðsson var næsthæstur með 68 milljónir króna í laun á síðasta ári.

Laun fimm bankastjóra viðskiptabankanna hækkuðu um 60% milli áranna 2003 og 2004. Á árinu 2003 voru laun fimm bankastjóra viðskiptabankanna samtals 174 milljónir en á árinu 2004 voru laun þeirra 279 milljónir króna.

Nánar er fjallað um þetta í Viðskiptablaðinu í dag.