Ný brynvarin og sprengjuvarin vöruskemma fyrir munaðarvörur á borð við myndlist, demanta og eðalvín var opnuð við flugvöllinn í Lúxemborg í síðustu viku.

Vöruskemman, sem ber nafnið Le Freeport, kostaði um sextíu milljónir evra og er ætlað að liðka fyrir flutningum á téðum munaðarvörum án þess að til tollgreiðslna komi. Þá geta eigendur munaðarvaranna geymt og skoðað verk sín innan um 50 sentimetra þykkar stálhurðir vöruskemmunnar.