Umsækjendur um starf ritara forsetaembættisins eru 60 talsins. Sá sem hneppir hnossið mun taka við af Örnólfi Thorssyni sem gengt hefur starfinu í 21 ár, en hann mun nú hverfa til annarra starfa.

Hæfniskröfur umsækjenda eru háskólamenntun sem nýtist í starfi, auk fjölþættrar reynslu af stjórnun, störfum á alþjóðavettvangi, mannauðsstjórnun og stefnumótun, auk leiðtogahæfni og færni í mannlegum samskiptum. Jafnframt þarf nýr forsetaritari að hafa staðgóða þekkingu á íslenskri stjórnskipun, gott vald á íslenskri og enskri tungu í ræðu og riti auk færni í a.m.k. einu Norðurlandamáli.

Á meðal umsækjenda eru Anna Sigrún Baldursdóttir, aðstoðarmaður forstjóra Landspítalans, Agnar Kofoed - Hansen , sem sat meðal annars í stjórn Arion banka og Afl sparisjóðs, Auðbjörg Ólafsdóttir, yfirmaður samskipta hjá Marel, Ásgeir B. Torfason, fyrrverandi lektor við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, Glúmur Baldvinsson, stjórnmálafræðingur og sonur Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrverandi utanríkisráðherra, Guðjón Rúnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja, Kristján Guy Burgess , stjórnmálafræðingur, sem starfaði á tímabili sem aðstoðarmaður Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra og framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar.

Einnig sótti Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður um starfið, sem og Sigurður Nordal , fyrrverandi fréttastjóri viðskipta á Morgunblaðinu, Sólveig Kr. Bergmann, upplýsingafulltrúi Norðuráls, Urður Gunnarsdóttir, hjá lýðræðis- og mannréttindaskrifstofu ÖSE, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, fyrrverandi þingmaður Vinstri grænna og formaður Skáksambands Íslands, Davíðs Stefánsson, fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins, Gísli Tryggvason, lögmaður og fyrrverandi talsmaður neytenda, Sigurjóna Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri Meet in Reykjavík, Rósa Guðrún Erl­ings­dótt­ir, upp­lýs­inga­full­trúi for­sæt­is­ráðuneyt­is­ins og Margrét Hauksdóttir forstjóri Þjóðskrár Íslands.

Viðskiptablaðið sagði frá því undir lok september að Una Sighvatsdóttir, fyrrum fréttamaður og upplýsingafulltrúi NATO, hefði verið hlutskörpust 188 umsækjenda um að starfa sem sérfræðingur hjá embættinu.

Heildarlisti umsækjenda:

  • Agnar Kofoed-Hansen ráðgjafi
  • Andrés Pétursson, stjórnandi Nordplus
  • Anna Sigrún Baldursdóttir, aðstoðarmaður forstjóra
  • Auðbjörg Ólafsdóttir, yfirmaður samskipta
  • Auður Ólína Svavarsdóttir deildarstjóri
  • Ásgeir Sigfússon framkvæmdastjóri
  • Ásgeir B. Torfason rekstrarhagfræðingur
  • Ásta Sól Kristjánsdóttir umsjónarmaður
  • Ásta Magnúsdóttir lögfræðingur
  • Bergdís Ellertsdóttir sendiherra
  • Birgir Hrafn Búason yfirlögfræðingur
  • Birna Lárusdóttir upplýsingafulltrúi
  • Björg Erlingsdóttir sveitarstjóri
  • Dagfinnur Sveinbjörnsson stjórnmálahagfræðingur
  • Davíð Stefánsson stjórnsýslufræðingur
  • Davíð Freyr Þórunnarson menningarstjóri
  • Finnur Þ. Gunnþórsson hagfræðingur
  • Gísli Ólafsson tæknistjóri
  • Gísli Tryggvason lögmaður
  • Glúmur Baldvinsson leiðsögumaður
  • Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, starfandi yfirmaður samvinnusviðs mannréttindastofnana Evrópuráðsins
  • Guðjón Rúnarsson lögmaður
  • Guðný Káradóttir verkefnastjóri
  • Guðrún Björk Bjarnadóttir framkvæmdastjóri
  • Guðrún E. Sigurðardóttir menntaskólakennari
  • Gunnar Þór Pétursson prófessor
  • Gunnar Þorri Þorleifsson kennari
  • Hanna Guðfinna Benediktsdóttir framkvæmdastjóri
  • Hans F. H. Guðmundsson fulltrúi
  • Hildur Hörn Daðadóttir framkvæmdastjóri
  • Hreinn Pálsson sendifulltrúi
  • Ingibjörg Ólafsdóttir framkvæmdastjóri
  • Jóhann Benediktsson markaðsstjóri
  • Jóhanna Bryndís Bjarnadóttir deildarstjóri
  • Jörundur Kristjánsson forstöðumaður
  • Kristján Guy Burgess stjórnmálafræðingur
  • Lilja Sigrún Sigmarsdóttir viðskiptastjóri
  • Magnús K. Hannesson sendifulltrúi
  • Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður
  • Margrét Hauksdóttir forstjóri
  • Matthías Ólafsson markaðsstjóri
  • Monika Waleszczynska viðskiptastjóri
  • Nína Björk Jónsdóttir sendifulltrúi
  • Pétur G. Thorsteinsson varaprótókollstjóri
  • Rósa Guðrún Erlingsdóttir sérfræðingur
  • Salvör Sigríður Jónsdóttir móttökuritari
  • Sif Gunnarsdóttir skrifstofustjóri
  • Sigríður Helga Sverrisdóttir kennari
  • Sigrún Lilja Guðbjartsdóttir framkvæmdastjóri
  • Sigurður Nordal, hagfræðingur og fyrrverandi framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands
  • Sigurjón Sigurjónsson verkefnastjóri
  • Sigurjóna Sverrisdóttir framkvæmdastjóri
  • Sólveig Kr. Bergmann samskiptastjóri
  • Stefán Vilbergsson verkefnisstjóri
  • Steinar Almarsson leiðsögumaður
  • Urður Gunnarsdóttir stjórnmálafræðingur
  • Valdimar Björnsson fjármálastjóri
  • Þorgeir Pálsson sveitarstjóri
  • Þorvaldur Víðisson biskupsritari
  • Þóra Ingólfsdóttir forstöðumaður