Líftæknifyrirtækið Genetech hefur greint frá verulegri hagnaðaraukningu á fyrsta ársfjórðungi. Hagnaður félagsins þá nam 284 milljónum dollara sem er 61% aukning miðað við árið á undan. Tekjur félagsins jukust um 50% og námu 1,46 milljörðum dollara.