Heildarvelta á Kauphöllinni í dag nam rúmum 6,1 milljarði króna en þar nam velta af hlutabréfaviðskiptum um 915 milljónum króna og velta á skuldabréfamarkaði um 5,2 milljarða króna.

Mest hækkaði gengi hlutabréfa í Össuri eða um 3,02% en þar á eftir hækkaði Icelandair Group mest eða um 1,49%. Mesta lækkunin var á gengi bréfa í Eimskipum eða um 1,04% og í Marel eða um 1,1%.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,08% og stendur lokagildi hennar í 1.309,76.