Í nóvember sl. voru fluttar út vörur fyrir 44,3 milljarða króna og inn fyrir 38,1 milljarð króna. Vöruskiptin í nóvember voru því hagstæð um 6,2 milljarða króna en í nóvember 2008 voru vöruskiptin hagstæð um 2,6 milljarða króna á sama gengi.

Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar.

Fyrstu ellefu mánuðina 2009 voru fluttar út vörur fyrir 432,5 milljarða króna en inn fyrir 366,6 milljarða króna. Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd sem nam 65,9 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 42,1 milljarð á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 108 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.   Á vef Hagstofunnar kemur fram að fyrstu ellefu mánuði ársins 2009 var verðmæti vöruútflutnings 133,7 milljörðum eða 23,6% minna á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 44,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 6,8% minna en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 49,9% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 26,5% minna en á sama tíma árið áður. Mestur samdráttur varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls, en einnig var samdráttur í útflutningi á skipum og flugvélum og á útflutningi sjávarafurða.

Fyrstu ellefu mánuði ársins 2009 var verðmæti vöruinnflutnings 241,7 milljörðum eða 39,7% minna á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Samdráttur varð í innflutningi nær allra liða innflutnings, mest í hrá- og rekstrarvöru, flutningatækjum og fjárfestingavöru.