Icelandair Group hagnaðist um 62 milljónir dollara á þriðja ársfjórðungi eða því sem nemur 7,5 milljörðum íslenskra króna. Dróst Hagnaður félagsins saman um 36% frá sama tímabili í fyrra. Heildartekjur á þriðja ársfjórðungi námu 545,2 milljónum Bandaríkjadala og jukust um 2% milli ára. EBITDA nam 115,0 milljónum dala samanborið við 155,9 milljónir dala á síðasta ári.
Lækkun farþegatekna á milli ára ásamt háu eldsneytisverði skýra lakari afkomu en á síðasta ári. Eiginfjárhlutfall var 36% í lok september. Nettó vaxtaberandi skuldir nema 222,2 milljónum dala í lok september.
Handbært fé og markaðsverðbréf nema 184,0 milljónum dala. EBITDA spá nemur 80-90 milljónir dala fyrir árið.
Bogi Nils Bogason starfandi forstjóri segir afkomu þriðja ársfjórðungs lækka milli ára en samt vera í samræmi við afkomuspá sem gefin var út í lok ágúst. „EBITDA nam alls 115 milljónum USD, 41 milljón USD lægri en á þriðja ársfjórðungi 2017. Hækkun olíuverðs, lág meðalfargjöld og lakari sætanýting eru helstu skýringar á verri afkomu.
Gripið hefur verið til fjölmargra aðgerða til að bæta samkeppnishæfni félagsins og vega upp á móti kostnaðarhækkunum, ekki síst vegna hækkunar á eldsneytisverði. Í maí 2019 hefst flug í nýjum tengibanka á Íslandi meðfram núverandi tengibanka leiðakerfisins með það að markmiði að skapa félaginu ný tækifæri til vaxtar, bæta þjónustu við farþega og auka sveigjanleika. Misvægi í sætaframboði milli N-Ameríku og Evrópu hefur verið leiðrétt í flugáætlun næsta árs. Sölu- og markaðsstarf félagsins hefur verið endurskipulagt. Áhersla er lögð á að styrkja tekjustýringu félagsins og er innleiðing á nýju tekjustýringarkerfi vel á veg komin. Sjálfvirknivæðing ferla, notkun stafrænna lausna ásamt eflingu viðbótartekna er í forgangi. Þá er betri nýting starfsfólks og allra rekstrarþátta lykilatriði í framtíðarekstri félagsins.
Verkefni okkar er skýrt, það snýst um að bæta rekstrarafkomu félagsins á heilsársgrunni. Þar eru fjölmörg tækifæri til staðar bæði hvað varðar tekjur og gjöld. Við erum sannfærð um að þær aðgerðir sem gripið hefur verið til og framundan eru muni skila sér í bættri afkomu Icelandair Group til framtíðar.“