Um 62% landsmanna vilja þjóðaratkvæðagreiðslu um nýjasta Icesave-samninginn.

Þetta kemur fram í viðhorfskönnun sem MMR gerði fyrir þjóðmálafélagið Andríki dagana 8. – 11. febrúar sl.  Spurt var: Telur þú eðlilegt að íslenska þjóðin fái að segja álit sitt á nýjasta Icesave-samningnum í þjóðaratkvæðagreiðslu?

Af þeim sem afstöðu tóku svöruðu 62,1% já. Nei sögðu 37,9%. Ekki er marktækur munur á afstöðu kynja og meirihluti í öllum aldurshópum er fylgjandi þjóðaratkvæðagreiðslu.

Sömuleiðis er bæði meirihluti fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu á höfuðborgarsvæði og á landsbyggðinni þótt hann sé meiri á landsbyggðinni .Þannig vilja um 68% þeirra sem búa á landsbyggðinni halda þjóðaratkvæðagreiðslu en 59% þeirra sem búa á höfuðborgarsvæðinu.

Athygli vekur að minnstur er stuðningur meðal sérfræðinga þó rúmlega 43% þeirra vilji þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave samninginn. Mestur er stuðningurinn meðal bænda og sjómanna.

Úrtak var 865 einstaklingar og afstöðu tóku 80,2%.