Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu 844 milljónum króna í mars. Þetta er 113 milljónum króna minna en í fyrra. Útlánin námu 957 milljónum króna í mars í fyrra. Fram kemur í mánaðaskýrslu Íbúðalánasjóðs að heildarvelta íbúðabréfa nam um 47,9 milljörðum króna í mars samanborið við 41,9 milljarða í mánuðinum á undan.
Þá kemur fram í mánaðaskýrslunni að einstaklingar voru með lán upp á tæpa 4,3 milljarða króna í vanskilum í mars. Undirliggjandi lánavirði nam 88 milljörðum króna eða um 13,18% útlána sjóðsins til einstaklinga. Þetta samsvarar 0,2% lækkun frá fyrra mánuði og var undirliggjandi hlutfall lánafjárhæðar í vanskilum í lok mars 0,61% lægra en sama hlutfall í mars í fyrra.
Heimili í vanskilum eru tæplega 4.700 og þar af eru 637 heimili með frystingu á lánum sínum. Alls voru því 9,20% þeirra heimila sem eru með fasteignalán sín hjá Íbúðalánasjóði með lánin í vanskilum í lok mars síðastliðnum samanborið við 9,24% í mars í fyrra.
Þá hækkuðu lán í frystingu um rúmar 800 milljónir króna milli mánaða en verðbólga marsmánaðar hafði töluverð áhrif til hækkunar útlánasafns sjóðsins.