Íslensku markaðsverðlaunin, Markaðsmaður ársins, voru afhent í gærkvöldi en fyrir valinu urðu hjónin hjónin Bjarney Harðardóttir og Helgi Rúnar Óskarsson, eigendur 66°Norður. Er þetta í annað sinn frá því að verðlaunin voru fyrst veitt árið 1981 sem hjón eru valin markaðsfólk ársins en árið 2006 voru Björn Kr. Leifsson og Hafdís Jónsdóttir, eigendur World Class valin markaðsfólk landsins.

Í tilkynningu frá ÍMARK kemur fram að verðlaunin séu veitt þeim einstaklingi sem þykir hafa sýnt framúrskarandi árangur í markaðsstarfi á líðandi ári. Við valið er leitast við að fá sem fjölbreyttastar skoðanir úr atvinnulífinu en dómnefnd skipa fyrrum formenn ÍMARK, fulltrúar úr stjórn ÍMARK, fulltrúar frá rannsóknarfyrirtæki, háskólasamfélaginu og úr atvinnulífinu. Dómnefnd taldi þau hjónin eiga bæði rétt á nafnbótinni og því var úr að þau deila henni.

Tæp 9 ár eru frá því að Helgi og Bjarney komu að félaginu og segir í tilkynningunni að strax frá fyrsta degi hafi markmið þeirra verið að hlúa að vörumerkinu og byggja það upp í gegnum virtar dreifileiðir erlendis.

„Lögð var áhersla á að halda í þá sterku arfleifð fyrirtækisins sem byggir fyrst og fremst á því að hanna og framleiða fatnað sem ekki bara stenst ströngustu gæðakröfur sem eru gerðar til útifatnaðar heldur eru hannaður til að endast svo árum skiptir. Hönnunin þarf því að vera tímalaus og er óhætt að segja að því markmiði hafi verið haldið til streitu því margar af vörum félagsins sem eru í sölu í dag hafa verið í vörulínunni svo árum skiptir og sumar hverjar í meira en tvo áratugi. Jafnframt hefur það verið kappsmál hjá þeim hjónum að gefa engan afslátt þegar kemur að gæðum og eru vörur félagsins með lífstíðarábyrgð.

Það kostar mikla peninga að byggja upp vörumerki svo eftir sé tekið á erlendum mörkuðum og því ákváðu Helgi og Bjarney að taka inn erlendan fjárfesti sem kom ekki bara með fjármagn heldur líka þekkingu og reynslu í að byggja upp virt vörumerki í fatageiranum. Það má því segja að árið 2018 hafi verið tímamótaár hjá 66°Norður.

Starfsemin hefur öll verið endurskipulögð með það að markmiði að styrkja innviði félagsins svo það sé í stakk búið að vaxa enn frekar á erlendri grundu. Mikil vinna hefur verið sett í hönnun og vöruþróun en vörulínan hefur tekið töluverðum breytingum á undanförnum misserum og hafa vörur 66°Norður verið í boði í mörgum af virtustu verslunum heims í Evrópu, Bandaríkjunum og Japan. Vörur félagsins hafa fengið einróma lof í erlendum fjölmiðlum víða um heim. Til að auka fjölbreytileika og koma merkinu á framfæri við nýja kaupendur hefur 66°Norður farið í samstarf við þekkta innlenda og erlenda hönnuði og fyrirtæki. Nú síðast með danska kvenfatamerkinu Ganni en það samstarf fékk einróma lof gagnrýnenda og var selt í hundruðum verslana víða um heim.

Síðast en ekki síst, vörumerki 66 norður er ótrúlega sterkt hér á landi en 99% heimila á íslandi eiga a.m.k. eina flík frá 66 norður. Vörumerkið hefur fylgt þjóðinni síðastliðin 93 ár og er óhætt að segja að sú mikla vinna sem þau hjónin hafa lagt í vörur og ímynd félagsins ásamt starfsfólki sínu, hafi skilað sér í enn öflugra vörumerki, vandaðri vörum og aukinni ánægju viðskiptavina,“ segir jafnframt í tilkynningu frá ÍMARK.