66° Norður lokuðu fyrir stuttu tveimur af fjórum verslunum sínum í Lettlandi. Forstjóri fyrirtækisins, Halldór Gunnar Eyjólfsson, sagði rekstur þess þó ganga vel og þetta einungis eðlilegar tilfærslur. "Hér er aðeins um hagræðingu að ræða eins og á sér reglulega stað í öllum fyrirtækjarekstri."