Fimm flíkur frá 66°Norður eru tilnefndar til Polartec verðlaunna í ár, að því er fram kemur í tilkynningu.

Polartec APEX verðlaunin eru veitt þeim hönnuðum og fyrirtækjum sem gera framúrskarandi vöru úr Polartec efni.
Flíkur og aukahlutir eru dæmdir eftir nýbreytni, hönnun, sniði og notkunarmöguleiknum.
Polartec® er stolt að segja frá því að fimm flíkur frá 66°Norður eru tilnefndar til verðlaunanna nú í ár.

Flíkurnar sem eru tilnefndar eru: Víkur jakki og buxur bæði fyrir konur og karla en þessar flíkur koma úr nýrri línu hjá 66°Norður sem er sérhönnuð fyrir hestamenn.

Auk þess var Kjölur kápan tilnefnd en hún sameinar flotta klassíska kápu hönnun og nýtískulega notkun á flísefni.