Úrvalsvísitalan hækkaði um 3,37% í dag og var lokagildi hennar 5.903, að því fram kemur í hálffimm fréttum Kaupþing banka og er það tíunda mesta hækkun vísitölunnar á einum degi. Bendir bankinn á að Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 6,66% á þeim þrem viðskiptadögum sem liðnir hafa á árinu.

Actavis hækkaði mest, eða um 5,3%. Næst mest hækkuðu bréf Kaupþings banka um 4,17%.