Gjaldeyrisforði Seðlabanka Íslands nam 667 milljörðum króna í lok desember og hækkaði um 124,5 milljarða á milli mánaða. Hefur gjaldeyrisforðinn aldrei verið stærri.

Erlendur gjaldeyrir jókst um 124,6 milljarða króna og jukust þar seðlar og innstæður í öðrum seðlabönkum, Alþjóðagreiðslubankanum og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum um 61,3 milljarða.

Gjaldeyrisforði Seðlabankans .