66°Norður hefur ákveðið að veita árlega tvo leiðangursstyrki að andvirði 500 þúsund kr. hvor til einstaklinga eða hópa. Styrkirnir fela bæði í sér fatnað fyrir leiðangurinn og peningastyrk að upphæð allt að 200.000 kr.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá 66°Norður en þar kemur fram margir hafa leitað til fyrirtækisins eftir leiðangursstyrkjum. Þannig hefur fyrirtækið styrkt marga leiðangra á síðustu árum og má þar til að mynda nefna göngu Mörtu Guðmundsdóttur yfir Grænlandsjökul til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands, göngu Leifs Arnar Svavarssonar á Cho Oyu og önnur fjöll auk þess sem 66°Norður styrkti göngu „Fimm tinda“ á hæsta fjall hvers landshluta til styrktar Sjónarhóls.

Fram kemur í tilkynningunni að styrkirnir eru tvískiptir; annars vegar er veittur styrkur fyrir leiðangra sem eru farnir til stuðnings góðs málefnis og vinna að því að kynna eða safna pening fyrir málefnið. Hins vegar er veittur styrkur til krefjandi leiðangra á nýjar slóðir.

Umsóknarfrestur fyrir styrki til stuðnings góðs málefnis er 15. mars ár hvert og tilkynnt hver niðurstaða valnefndar er 1. apríl. Umsóknarfrestur fyrir krefjandi leiðangra er 15. september og tilkynnt verður 1. október hvaða leiðangur hlýtur styrkinn.

Þá kemur fram að valnefnd skipuð fulltrúum frá Íslenska Alpaklúbbnum, Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu, Ferðafélagi Íslands, Ferðafélaginu Útivist, Bandalagi íslenskra skáta, Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum ásamt fulltrúa frá 66°Norður mun fara yfir allar umsóknir og velja þá leiðangra sem hljóta styrkinn hverju sinni.

Að þessu sinni sytja í valnefndinni Freyr Ingi Björnsson frá ÍSALP, Jón Ingi Sigvaldason frá SL, Páll Guðmundsson frá FÍ,Skúli H. Skúlason frá FÚ, Margrét Tómasóttir frá BÍS, Einar Torfi Finnsson frá ÍFLM og Helga Viðarsdóttir frá 66°Norður.

Hægt er að sækja um leiðangursstyrkinn hér: http://www.66north.is/um-66nordur/leidangursstyrkur-66nordur/umsokn/