Atvinnuleysi 6,7% og langtímaatvinnuleysi eykst Á fjórða ársfjórðungi 2009 voru að meðaltali 12.000 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 6,7% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 7,9% hjá körlum og 5,4% hjá konum.

Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar en þegar litið er til aldurs var atvinnuleysið mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára, eða 16,1%. Frá fjórða ársfjórðungi 2008 til fjórða ársfjórðungs 2009 fjölgaði atvinnulausum um 4.600 manns.

Á fjórða ársfjórðungi 2009 var atvinnuleysi 6,6% á höfuðborgarsvæðinu en 7% utan þess.

Þeir sem hafa verið atvinnulausir í 12 mánuði eða lengur eru skilgreindir sem langtímaatvinnulausir. Á fjórða ársfjórðungi 2009 höfðu um 1.700 manns verið atvinnulausir svo lengi, eða um 14% atvinnulausra, en voru á sama tímabili 2008 um 200 manns.

Starfandi fólki fækkar um 8.500 og atvinnuþátttakan var 80,3%

Þá kemur fram að fjöldi starfandi á fjórða ársfjórðungi 2009 var 166.500 manns og fækkaði um 8.500 frá sama tíma ári áður. Á vinnumarkaði voru alls 178.500 manns sem jafngildir 80,3% atvinnuþátttöku. Atvinnuþátttaka karla var 83,3% og kvenna 77,3%.

Á fjórða ársfjórðungi 2008 voru alls 182.400 á vinnumarkaði og atvinnuþátttaka mældist 81,5%. Atvinnuþátttaka karla var 85,3% og kvenna 77,4%.

Vinnutími 38,9 klst. á viku

Loks kemur fram að á fjórða ársfjórðungi 2009 var meðalfjöldi vinnustunda 38,9 klst. hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 42,9 klst. hjá körlum en 34,5 klst. hjá konum. Meðalfjöldi vinnustunda hjá þeim sem voru í fullu starfi var 44,6 klst. en 23 klst. hjá þeim sem voru í hlutastarfi.

Á fjórða ársfjórðungi 2008 var meðalfjöldi vinnustunda 39,3 klst., 43,8 klst. hjá körlum en 34,2 klst. hjá konum. Þeir sem voru í fullu starfi unnu 45 klst. að jafnaði en þeir sem voru í hlutastarfi unnu að jafnaði 21,7 klst.

Sjá nánar á vef Hagstofunnar.