Íbúðirnar 67 sem verða tilbúnar til afhendingar í febrúar eru allt frá  50 fermetrum upp í 180 fermetra. Brandur Gunnarsson, fasteignasali hjá Borg fasteignasölu segir að sú stærsta sé reyndar. „Algeng stærð í kringum 100 fermetra. Það verða 25 þannig íbúðir afhentar í fyrsta áfanga.“ Hann segir að fermetraverð sé allt frá 524 þúsundum en algengt fermetraverð er 600 þúsund krónur, með stæði í bílageymslu. Aflokaður innigarður sem tilheyrir klasanum.

Íbúðirnar verða sýndar milli 14 og 16 í dag. Brandur segir að mikið hafi verið spurt um íbúðirnar, en þær fóru á fasteignavef mbl.is í gær. „Fólk á öllum aldri er að spyrja þetta er mjög blandaður hópur,“ segir Brandur.