Velta á fasteignamarkaði lækkaði um 30% á milli vikna en í þessari viku nam veltan um 2 milljörðum en í fyrri viku nam veltan um 2,9 milljörðum króna. Hafa skal þó í huga að samantekt Fasteignamati ríkisins (FMR) birtist venjulega á föstudögum en birtist nú á miðvikudegi vegna páskahátíðarinnar.

Meðalvelta á hvern samning er þó 30 milljónir en var 29,1 í síðustu viku.

Á meðfylgjandi línuriti má sjá breytingu á fjögurra vikna meðalveltu á milli ára. Fasteignasala sveiflast gjarnan mikið á milli vikna og þess vegna er horft til meðalveltu nokkurra vikna og breytinga á henni milli ára. Kaupsamningum hefur fækkað milli ára og er vægi hvers kaupsamnings meira fyrir vikið. Auk þess getur hver samningur falið í sér fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mismunandi.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í vikunni var  67 en þeir voru 102 í vikunni þar áður. Þinglýstir samningar eru að meðaltali 88 á viku frá áramótun. Ef litið er til ársbreytingar á veltu hefur kaupsamningum fækkað um 63%