Frumvarp að nauðasamningi Straumborgar, félags Jóns Helga Guðmundssonar, var samþykkt á fundi með kröfuhöfum þann 15. maí síðastliðinn. Frumvarpið var samþykkt með 67% atkvæða eftir höfðatölu og 68,95% atkvæða eftir kröfufjárhæðum.
Fram kemur í Lögbirtingablaðinu, þar sem nauðasamningurinn er birtur, að Arion banki er stærsti kröfuhafinn með um 54,2% krafna. Næststærstur er Landsbankinn sem gerir um 2,6 milljarða kröfu í búið. Samtals nema kröfur um 17,6 milljörðum króna. Leitað verður staðfestingar nauðasamnings hjá Héraðsdómi Reykjaness á föstudag.
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir liðnum tölublöð