Gengi hlutabréfa stoðtækjafyrirtækisins Össurar hækkaði um 3,08% í kauphöllinni í dag. Ekki var mikil velta með hlutabréf í félaginu eða upp á 67 þúsund krónur. Á sama tíma hækkaði gengi hlutabréfa Icelandair Group um 1,97%, N1 um 1,68%, TM um 1,02%, HB Granda um 0,67%, Haga um 0,56% og Sjóvár um 0,41%.

Á hinn bóginn lækkaði gengi bréfa Marel um 0,48%, Eimskips um 0,44%, Regins um 0,32% og VÍS um 0,12%.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,84% og endaði hún í 1.164 stigum. Heildarvelta með hlutabréf í Kauphöllinni nam í dag rúmum 1,3 milljörðum króna.