Á þriðja ársfjórðungi 2017 var 68,1 ma.kr. afgangur á viðskiptajöfnuði við útlönd. Halli á vöruskiptajöfnuði var 47,5 ma.kr. en afgangur á þjónustujöfnuði var 117,5 ma.kr. Frumþáttatekjur skiluðu 1,6 ma.kr. afgangi en rekstrarframlög 3,5 ma.kr. halla.

Þetta kemur fram í nýbirtum upplýsingum á vef Seðlabanka Íslands sem sýna bráðabirgðayfirlit um greiðslujöfnuð á þriðja ársfjórðungi 2017 og stöðu þjóðarbúsins í lok ársfjórðungsins.

Samkvæmt bráðabirgðayfirlitinu námu erlendar eignir þjóðarbúsins 3.307 ma.kr. í lok ársfjórðungsins en skuldir 3.198 ma.kr. Hrein staða við útlönd var því jákvæð um 108 ma.kr. eða sem nam 4,4% af vergri landsframleiðslu (VLF) og batnaði um 125 ma.kr. eða sem nam 5% af VLF á milli ársfjórðunga.

Hrein fjármagnsviðskipti bættu erlenda stöðu þjóðarbúsins um 72 ma.kr. Skuldir lækkuðu um 398 ma.kr. og erlendar eignir um 326 ma.kr. vegna fjármagnsviðskiptanna. Gengis- og verðbreytingar höfðu jákvæð áhrif á erlenda stöðu þjóðarbúsins um sem nam 91 ma.kr. Skýrist það af 4,5% verðhækkunum á erlendum hlutabréfamörkuðum og af 5% lækkun á gengi krónunnar gagnvart helstu gjaldmiðlum miðað við gengisskráningarvog.