Alls bárust 69 þúsund umsóknir um leiðréttingu verðtryggðra lána. Frestur til að sækja um lánaleiðréttinguna rann út í gær. Áfram verður tekið við umsóknum um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán og hafa 27.500 einstaklingar þegar sótt um þann hluta aðgerðar stjórnvalda um lækkun höfuðstóls húsnæðisskulda.

Fram kemur á vef fjármálaráðuneytis að sótt var um til ríkisskattstjóra og bárust embættinu alls um 69 þúsund umsóknir frá 105 þúsund einstaklingum. Tekið var við umsóknum á vefsíðunni www.leidretting.is frá 18. maí sl.

Framkvæmd lækkunar á verðtryggðum lánum fer fram í tveimur áföngum. Í fyrri áfanga mun ríkisskattstjóri vinna úr umsóknum og niðurstaða útreikninga verður í framhaldinu birt umsækjendum. Vinnsla umsókna er nú þegar hafin og er gert ráð fyrir að henni ljúki á nokkrum vikum. Í seinni áfanga verður fjárhæð til lækkunar á höfuðstól verðtryggðra fasteignalána ráðstafað inn á lán. Umsækjendur þurfa að samþykkja ráðstöfunina með rafrænni undirritun. Nýtt eru rafræn skilríki sem fáanleg eru á kortum og símum. Þetta er gert til að tryggja öryggi umsækjenda og eflir örugg rafræn viðskipti á Íslandi. Í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar munu rafrænar undirskriftir verða notaðar í ríkari mæli í framtíðinni, svo sem við vefskil á skattframtölum til ríkisskattstjóra.

Séreignasparnaðurinn

Frá 28. maí hefur jafnframt verið mögulegt að sækja um til ríkisskattstjóra að ráðstafa séreignarsparnaði inn á fasteignaveðlán. Frestur til þess að sækja um ráðstöfun séreignarsparnaðar fyrir tímabilið frá 1. júlí 2014 er hins vegar útrunninn. Umsóknir sem gerðar eru eftir 31.ágúst taka gildi frá því að þær berast og taka til launatímabila frá sama tíma.

Þá geta einstaklingar sem ekki eiga íbúðarhúsnæði til eigin nota sótt um fram til 30. júní 2019  að nýta séreignarsparnað sem aflað var á tímabilinu 1. júlí 2014 til 30. júní 2017 til kaupa eða byggingar á húsnæði til eigin nota. Tekið er við slíkum umsóknum á www.leidretting.is.Í gærkvöldi höfðu 27.500 einstaklingar sótt um að ráðstafa séreignarsparnaði inn á fasteignaveðlán.