Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um rúm 7% í júní miðað við sama tíma í fyrra, úr tæpum 240 þúsund farþegum árið 2006 í rúmlega 257 þúsund farþega nú að því er kemur fram í frétt flugstöðvarinnar.

Fjölgun farþega til og frá Íslandi nemur rúmum 7% milli ára, en farþegafjöldi þeirra sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fjölgaði um rúm 8%.