Viðbrögð almennings við sjónvarpsþættinum The Biggest Loser Ísland eru þau bestu síðan að SkjárEinn varð að áskriftarsjónvarpi árið 2009. Alls horfði 70% áskrifenda Skjásins á fyrsta þáttinn í frumsýningu, hliðruðu áhorfi eða endursýningu.

Áhorfið er það það mesta á stökum sjónvarpsviðburði í sögu SkjásEins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá SkjáEinum.

Meira en 5.000 heimili fengu sér áskrift að SkjáEinum vikurnar í aðdraganda þáttanna og nú hafa áskrifendur stöðvarinnar aldrei verið fleiri.

Í þriðja þættinum, sem sýndur verður kl. 20.40 í kvöld, munu keppendur njóta þjálfunar frá gestaþjálfaranum Annie Mist Þórisdóttir, tvöföldum heimsmeistara í CrossFit.