Jafn mörg fyrirtæki eru með konur og karla í stjórn og þau sem eru einungis með konur í stjórn. Um 70% fyrirtækja eru aðeins með karlmenn í stjórn, 14,5% með bæði kyn og 14,8% með aðeins konur. Kemur þetta fram í könnun sem Creditinfo vann fyrir Félag kvenna í atvinnurekstri. Ef varamenn eru meðtaldir þá er 60% stjórna fyrirtækja á Íslandi með bæði kyn í stjórn.

© Getty Images (Getty)

Samkvæmt upplýsingum frá Creditinfo voru lengi vel jafnmargar konur skráðar sem varamenn í stjórnum samanborið við karlmenn en frá árinu 2005 hafa konur verið í meirihluta sem varamenn.