Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, kynnti í dag Vörðu, nýja heildstæða nálgun áfangastaðastjórnunar. Til stendur að verja 700 milljónum króna í verkefnið að svo stöddu, þar af 300 milljónum króna árið 2021 og 200 milljónum árin 2022 og 2023. Þetta kemur fram í tilkynningu frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.

Með Vörðu verða lögð drög að fyrirmyndaráfangastöðum og verða Vörður áfangastaðir á Íslandi sem teljast einstakir á lands- eða heimsvísu. Meginaðdráttarafl þeirra eru náttúrufyrirbæri og/eða menningarsögulegar minjar sem mynda sérstætt landslag eða landslagsheildir.

Fyrstu áfangastaðirnir sem hefja ferli til að verða Vörður eru Gullfoss, Geysir, Þingvallaþjóðgarður og Jökulsárlón. Stefnt er að því að á árinu 2022 verði opnað á að fleiri staðir, þar á meðal staðir í eigu einkaaðila, geti sótt um aðild að kerfinu.

„Vörður verða markaðssettar til íslenskra og erlendra ferðamanna og er ætlunin að úr verði þekkt merki sem ferðamenn leita uppi við skipulagningu á ferðalögum sínum. Vörðum er ætlað að leiða ferðamenn áfram á leið sinni um landið og jafnframt að vera öðrum áfangastöðum fyrirmynd um stjórnun, umsjón, skipulag, aðbúnað, þjónustu, náttúruvernd, öryggi og annað sem varðar móttöku ferðamanna,“ segir Þórdís Kolbrún í tilkynningu.

Þeir áfangastaðir sem verða að Vörðum eru fjölsóttir áfangastaðir sem ferðamenn sækja heim allt árið um kring. Við umsjón þeirra er unnið að sjálfbærni á öllum sviðum, umhverfislegri, samfélagslegri og efnahagslegri. Staðirnir þurfa að sýna fram á langtímaskuldbindingu til þess að framfylgja skilgreindum viðmiðum við stjórnun og skipulagningu meðal annars hvað varðar hönnun innviða, aðgengi, fræðslu, öryggi, álagsstýringu, stafræna innviði og fleira.

Ráðherra kynnti kerfið, nýtt heiti og markaðsnafnið Vörðu á kynningarfundi í dag sem má sjá hér að neðan.