Í nýrri könnun MMR þar sem spurt var hvort fólk gæti nefnt einhvern einstakling í samfélaginu sem væri eða gæti orðið sameiningartákn fyrir íslensku þjóðina töldu 72,1% sig ekki geta nefnt einstakling í samfélaginu sem uppfyllir þau skilyrði.

Þá var núverandi forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, aðeins nefndur sem sameiningartákn af 1% svarenda.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá MMR.

Sem fyrr segir sögðu áberandi flestir að þeim dytti enginn slíkur í hug (72,1%). Af þeim sem nefndir voru fengu flestar tilnefningar þau Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands (4,5%) og Davíð Oddsson, fyrrverandi ráðherra og seðlabankastjóri (3,8%).

Þar á eftir komu þau Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, og Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, en ríflega 2% svarenda nefndu annað hvort þeirra.

Þá nefndu rétt um 1% svarenda þá Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Framsóknarflokksins og Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands. Aðrir voru nefndir af færri en 1% svarenda.

Í tilkynningu MMR er þó tekið fram að spurningin sem lögð var fyrir, tók hvorki tillit til þess hvort fólk styddi eða treysti einstaklingum sem nefndir voru, heldur eingöngu hvort fólk teldi að þeir væru eða gætu orðið sameiningartákn fyrir íslensku þjóðina. Alls svöruðu 909 einstaklingar könnuninni sem fór fram frá 9. – 14. september.