Á fjórða ársfjórðungi 2010 voru að meðaltali 13.200 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 7,4% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 8,4% hjá körlum og 6,3% hjá konum. Frá fjórða ársfjórðungi 2009 til fjórða ársfjórðungs 2010 fjölgaði atvinnulausum um 1.200 manns.

Hagstofan birti í dag upplýsingar um vinnumarkaðinn á 4. ársfjórðungi.

Þegar litið er til aldurs var atvinnuleysið mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára, eða 15,4%. Hjá hópnum 24–54 ára var atvinnuleysi 6,6% og 3,8% hjá 55–74 ára. Á fjórða ársfjórðungi 2010 var atvinnuleysi 8,2% á höfuðborgarsvæðinu en 5,9% utan þess.

Af þeim sem voru atvinnulausir á fjórða ársfjórðungi 2010 höfðu 800 fengið vinnu sem átti að hefjast síðar, eða 5,8%. Til samanburðar höfðu 300 manns fengið vinnu, eða 2,2%, á fjórða ársfjórðungi 2009. Á fjórða ársfjórðungi 2010 höfðu um 3.200 manns verið atvinnulausir í 12 mánuði eða lengur, eða 24,2% atvinnulausra, en voru á sama tímabili 2009 um 1.700 manns, eða 14%.

Atvinnulausir teljast þeir sem voru án atvinnu í viðmiðunarviku könnunarinnar, þ.e. höfðu hvorki atvinnu né voru í vinnu (í eina klukkustund eða lengur) sem launþegi eða sjálfstætt starfandi, eru að leita að vinnu og geta hafið störf innan tveggja vikna eða hafa fengið starf sem hefst innan 3 mánaða. Einstaklingar sem eru ekki í vinnu en eru í námi flokkast atvinnulausir ef þeir uppfylla skilyrðin hér að ofan.

Atvinnuþátttakan var 79,9%

Fjöldi starfandi á fjórða ársfjórðungi 2010 var 165.600 manns og fækkaði um 900 frá sama tíma ári áður. Á vinnumarkaði voru alls 178.800 manns sem jafngildir 79,9% atvinnuþátttöku. Atvinnuþátttaka karla var 83,5% og kvenna 76,2%. Til þeirra sem eru á vinnumarkaði teljast bæði þeir sem eru starfandi og atvinnulausir. Fólk telst vera starfandi ef það hefur unnið eina klukkustund eða meira í viðmiðunarviku könnunar eða verið fjarverandi frá starfi sem það gegnir að öllu jöfnu.

Á fjórða ársfjórðungi 2009 voru alls 178.500 á vinnumarkaði og atvinnuþátttaka mældist þá 80,3%. Atvinnuþátttaka karla var 83,3% og kvenna 77,3%.

Vinnutími 38,3 klst. á viku

Á fjórða ársfjórðungi 2010 var meðalfjöldi vinnustunda 38,3 klst. hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 42,6 klst. hjá körlum en 33,7 klst. hjá konum. Meðalfjöldi vinnustunda hjá þeim sem voru í fullu starfi var 44,3 klst. en 22,8 klst. hjá þeim sem voru í hlutastarfi.

Á fjórða ársfjórðungi 2009 var meðalfjöldi vinnustunda 38,9 klst., 42,9 klst. hjá körlum og 34,5 klst. hjá konum. Þeir sem voru í fullu starfi unnu 44,6 klst. að jafnaði en þeir sem voru í hlutastarfi unnu að jafnaði 23 klst.