Samkvæmt niðurstöðu rannsókna Hagstofu Íslands eru 80% fyrirtækja með 10 starfsmenn eða fleiri með staðarnet, 56% þráðlaust staðarnet og 18% nota opinn hugbúnað.

Vefsíða er aðgengileg hjá 77% íslenskra fyrirtækja og hjá helmingi íslenskra fyrirtækja eru upplýsingar um vörur og þjónustu aðgengilegar á vefsíðu. Nærri 30% íslenskra fyrirtækja nota sjálfvirk gagnaskipti um netkerfi og þá helst í samskiptum við opinbera aðila. Tæplega 40% fyrirtækja pöntuðu vörur eða þjónustu um netkerfi á síðasta ári og tæplega fjórðungur fyrirtækja seldi vörur eða þjónustu