Play flutti 61.798 farþega í janúar sem er fimmfalt á við farþegafjölda á sama tíma á síðasta ári. Sætanýting var 76,8%. „Þessar tölur eru mjög ásættanlegar fyrir janúarmánuð í fluggeiranum og ótvíræður vitnisburður um skilvirkt leiðakerfi og góðan árangur í sölu- og markaðsmálum,“ segir í tilkynningu Play.

Áfram var mikil ásókn í flugferðir Play til Tenerife sætanýting á þessari leið var yfir 90% í janúar. „Sætanýting til Parísar var svipað góð.“

Af farþegum Play í janúar voru sem ferðuðust frá Íslandi, 37% til Íslands og 32% voru tengifarþegar. Stundvísi félagsins í janúar var 84,3%.

„Farþegatölurnar í janúar voru góðar og nýtingin vel ásættanleg þrátt fyrir að eftirspurn sé almennt með lægsta móti í janúar. Við nýttum sveigjanleika leiðakerfisins og aðlöguðum tíðni flugleggja til að lágmarka kostnað á þessum lágannatíma í flugrekstri,“ segir Birgir Jónsson, forstjóri Play.

„Bókunarstaðan í janúar var feiknasterk sem er til marks um gott ár fram undan. Við verðum með næstum því 77% meira framboð í sumar miðað við síðasta sumar og fáum fjórar nýjar flugvélar. Þá bjóðum við 200 nýja starfsmenn velkomna um borð en það er sannur heiður að fá að fylgjast með Play teyminu stækka og styrkjast.“