Flugfélagið Play flutti 75.396 farþega í nóvember 2022 eða um fjórfalt fleiri farþega en í nóvember í fyrra. Sætanýting Play í síðasta mánuði var 79,1% en hún var 81,9% í október. „Flugferðir til London, Paris og Tenerife nutu mikilla vinsælda með um 90% sætanýtingu,“ segir í tilkynningu Play.

Í mánuðinum voru 29,8% farþega Play farþegar á leið frá Íslandi, 30,9% voru farþegar á leið til landsins og 39,3% voru tengifarþegar á leið frá Evrópu til Bandaríkjanna eða öfugt.

„Það er alveg óhætt að halda því fram að farþegatölurnar okkar hafi verið mjög fínar fyrir nóvembermánuð. Það hefur verið einkar ánægjulegt að sjá meiri en 90% sætanýtingu á mörkuðum á borð við London og París sem eru báðir mikilvægir markaðir fyrir leiðakerfið okkar. Auk þess var áhugavert að sjá að sólarstrandarstaðirnir okkar, Tenerife og Alicante, hafi verið með hátt í 90% sætanýtingu þar sem áfangastaðir á borð við þá ná venjulega ekki svo góðum árangri í nóvembermánuði,“ segir Birgir Jónsson, forstjóri Play.

Stundvísi Play var 98,2% í nóvember en félagið hefur aldrei náð betri stundvísi frá því full starfsemi hófst. „Þetta þýðir að næstum öll flug Play, til og frá landinu, stóðust áætlun í nóvember, með lítilsháttar undantekningum,“ segir í tilkynningunni.

Play til Hamborgar, Stokkhólms og Varsjár

Play hóf miðasölu á flugi til Stokkhólms í Svíþjóð og Hamborgar í Þýskalandi í nóvember. Fyrsta flug Play til Stokkhólms verður 31. mars 2023 og flogið verður fjórum sinnum í viku. Fyrsta flug Play til Hamborgar verður 16. maí 2023 en flogið verður þrisvar í viku.

Þá hóf Play miðasölu á flugi til Varsjár í Póllandi í byrjun desember. Fyrsta flugið verður 3. apríl 2023 en flogið verður tvisvar í viku.