Vinnumálastofnun bárust fjórar tilkynningar um hópuppsagnir í október 2014, þar sem 79 manns var sagt upp störfum. Þetta kemur fram á vef Vinnumálastofnunar .

Um er að ræða tilkynningar um hópuppsagnir í mannvirkjagerð, fiskvinnslu og fasteignarekstri. Uppsagnirnar koma til framkvæmda á tímabilinu desember 2014 til maí 2015.