Tap geoSilica ehf. nam 8 milljónum króna á síðasta rekstrarári, samanborið við 10 milljóna króna tap árið áður. Rekstrartekjur félagsins námu tæplega 41 milljón króna og eignir námu tæplega 23 milljónum króna.

Eigið fé félagsins nam 16 milljónum króna í árslok 2017.  Fida Abu Libdeh er stærsti hluthafi félagsins og framkvæmdastjóri þess. Fyrir nokkru greindi Viðskiptablaðið frá því að fyrirtækið væri langt komið með að fara inn á Kínamarkað.