Mikilvægt er að líta til annarra norrænna ríkja, sér í lagi Svíþjóðar og Danmerkur, við gerð næstu kjarasamninga, þar sem áhersla hefur verið lögð á að móta samræmda launastefnu í kjaraviðræðum fyrir allan vinnumarkaðinn og halda verðbólgu í skefjum.

Þetta segir Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins í samtali við Morgunblaðið. Samanburðurinn er sláandi að sögn hans. Frá 2003 hefur launavísitalan hér á landi hækkað um 80% og kaupmátturinn um 3% en á sama tíma hefur launavísitala í löndum á borð við Svíþjóð og Danmörku hækkað um einhver 25 til 30% en kaupmátturinn um 12 til 14%, segir hann.

Samtök á vinnumarkaði eru byrjuð að undirbúa sig fyrir komandi kjaraviðræður og fóru m.a. nýverið og kynntu sér hvernig staðið er að kjarasamningsgerð hjá nágrannaþjóðunum. Þorsteinn segir að þar vilji menn leggja talsvert mikið á sig til að standa vörð um jafnvægi í kjarasamningum í stað svokallaðs höfrungahlaups, þar sem stéttum er att saman, sem aftur leiðir til almenns launaskriðs og verðbólgu.