Rúmlega þriðjungur vinnuveitenda félagsmanna í Verkfræðingafélagi Íslands nýttu sér hlutabótaleið stjórnvalda, en einungis 14% aðspurðra í könnun meðal félagsmanna fóru í hlutastarf vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins, og 2,5% misstu vinnuna.

Tæplega 81% félagsmanna urðu hins vegar ekki fyrir tekjuskerðingu, meðan grunnlaun lækkuðu hjá 5,7% aðspurða og 4,8% nefndu minni yfirvinnu sem skýringu á skertum tekjum. Hjá langflestum þeirra sem misstu tekjur, eða 76,7% þeirra, var tekjuskerðingin þó undir fjórðungi.

Þetta er meðal þess sem fram kemur á heimasíðu Verkfræðingafélagsins þar sem sagt er frá niðurstöðu könnunarinnar, en alls svöruð 1.670, eða 38,8% þeirra sem fengu hana senda. Könnunin fór fram 10. júní til 4. júlí.

Þriðjungur þótti afköstin minni í fjarvinnu

Fjarvinna var valfrjáls hjá 26% svarenda, hjá 30% var hún vegna fyrirmæla vinnuveitanda. Ríflega 83% unnu fjarvinnu að einhverju leyti. 46,4% voru í fjarvinnu meira en 2/3 hluta tímans.

Tæp 60% fannst auðvelt að uppfylla vinnuskyldu í fjarvinnu sem þýðir að 40% finnst í meðallagi eða fremur erfitt að uppfylla vinnuskylduna. Ef litið er á afköst þá telja um 30% þau vera minni í fjarvinnu.

Verkefnaskortur er ekki ástæða fyrir vandkvæðum við vinnu frá heimili. Aftur á móti þurfti nærri helmingur að gæta barna sem annars hefðu verið í leikskóla eða grunnskóla. Sömu sögu er að segja þegar spurt var um truflun vegna aðstoðar við heimalærdóm.

Minnihluti þurfti að einhverju marki að takast á við tæknileg vandræði, til dæmis vegna fjarfunda. Einnig virðist vinnuaðstaða heima við yfirleitt vera í góðu lagi.

Fáir hafa áhyggjur af atvinnumissi

Rétt innan við 10% telur í meðallagi eða miklar líkur á að missa vinnunna á næstunni. Þegar spurt er um breytingar á starfi þá nefnir yfirgnæfandi meirihluti, eða 78,3%, að fjarfundir verði fleiri og helmingur að ferðalög erlendis verði færri. Þá búast tæp 40% svarenda við að fjarvinna verði meiri og vinnutími sveigjanlegri.

Athygli vekur að aðeins tæp 5% þurftu að nota orlofsdaga til að mæta aðstæðum vegna COVID-19. Fyrirfram var búist við að félagsmenn hefðu þurft að nýta sér þetta úrræði í mun meira mæli að því er segir á vef Verkfræðingafélagsins.

Fjarvinnan kærkomin vegna opinna vinnurýma

Í lok könnunarinnar var opin spurning um líf og starf á tímum COVID-19. Þar koma fram afar mismunandi skoðanir á kostum og göllum fjarvinnu. Margir voru mjög ánægðir með að geta unnið heima, aðrir nefndu kvíða vegna þess að geta ekki uppfyllt vinnuskylduna og afköstin væru minni.

Þó nokkrir nefndu að andlegri líðan hefði hrakað, meðal annars vegna félagslegrar einangrunar. Eins og búast mátti við hefur staðan verið afar erfið hjá mörgum sem voru heima með ung börn og kemur vel fram að þetta tímabil hefur tekið á.

Áhugavert er að þó nokkrir nefna að opið vinnurými henti þeim illa og meðal annars séu afköst minni vegna truflunar. Fjarvinnan hafi því verið kærkomin.