Heildarsala skuldabréfa í ágúst 2009 nam 16,6 milljörðum króna samanborið við 49,6 milljarða í sama mánuði árið áður.

Þetta kemur fram í Hagtölum Seðlabankans.

Af fyrrgreindum 16,6 milljörðum nam sala í formi verðtryggðra skuldabréfa 0,6 milljörðum króna og um 16 milljarðar króna voru í formi óverðtryggðra skuldabréfa.

Það sem af er ári nemur heildarsala skuldabréfa um 197,6 milljörðum króna. Þar af nemur sala á verðtryggðum skuldabréfum rúmum 41,4 milljörðum en sala á óverðtryggðum bréfum rétt rúmum 156 milljörðum króna.

Af óverðtryggðu skuldabréfunum hefur mesta salan verið á Íbúðabréfum eða rúmir 15,7 milljarðar króna. Þá nemur heildarsala skuldabréfa sveitafélaga um 8,4 milljörðum króna en bréf fyrirtækja rúmum 9,5 milljörðum króna.

Ríkisbréf eru hins vegar langmest seldu bréfin í formi óverðtryggðra skuldabréfa, eða um 146,7 milljarðar króna. Bréf fyrirtækja í flokki óverðtryggðra skuldabréfa nema 9,4 milljörðum.

Á sama tíma í fyrra nam heildarsala skuldabréfa 235,8 milljörðum króna en helsti munurinn var í formi verðtryggðra skuldabréfa sem þá námu um 81,3 milljörðum króna. Sala óverðtryggðra skuldabréfa er á svipuðu reiki á milli ára en á sama tíma í fyrra námu þau 154,5 milljörðum króna.