Um 80 skemmtiferðaskip eru væntanleg til Reykjavíkur í sumar og sumarið 2013 lítur einnig ágætlega út en þá eru staðfestar komur 66 skemmtiferðaskipa til Reykjavíkur.

Stærstu skipin sem koma eru um 140 þúsund brúttótonn og geta tekið hátt í 3.000 farþega. Fjöldi væntanlegra skemmtiferðaskipa í sumar er meiri en í fyrra en þá komu 67 skemmtiferðaskip til Reykjavíkur og farþegar þeirra voru 63 þúsund. 65 skemmtiferðaskip eru væntanleg til Akureyrar í sumar sem er næststærsti viðkomustaður skemmtiferðaskipa á Íslandi.