80,1% eru frekar eða mjög andvíg því að Jóhannes Jónsson (betur þekktur sem Jóhannes í Bónus), starfandi stjórnarformaður Haga, fái að kaupa allt að 10% hlut í Högum af Arion Banka.

Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR en MMR kannaði hversu fylgjandi eða andvígt fólk væri gagnvart því að Jóhannes fengi að kaupa hlutinn.

Af þeim sem tóku afstöðu voru í heild 80,1% sem sögðust frekar eða mjög andvíg hugmyndinni. Skipt eftir einstökum svörum voru 59,1% sem sögðust mjög andvíg, 21,0% sögðust frekar andvíg, 12,9% sögðust frekar fylgjandi og 7% sögðust mjög fylgjandi því að Jóhannes fengi að kaupa allt að 10% hlut í Högum.

Fram kemur í könnuninni að lítill munur mælist á afstöðu svarenda eftir kyni, aldri, búsetu og heimilistekjum. Í öllum hópum sögðust yfir 75% vera andvíg því að Jóhannes Jónsson fengi að kaupa allt að 10% hlut í Högum.

Sjá könnun MMR í heild sinni.