Reykjavíkurborg mun innan tíðar bjóða út ýmis stærri viðhaldsverkefni í fasteignum borgarinnar. Verja á 800 milljónum króna til 355 verkefna í 170 fasteignum og er þetta annað árið í röð sem 800 milljónum er bætt við hefðbundið viðhald með sérstakri fjárveitingu á fjárfestingaáætlun. Um helgina verður auglýst eftir verktökum sem vilja vera á lista borgarinnar þegar einstaka verkþættir eru boðnir út.

„Flest átaksverkefnanna eru viðhald skóla- og frístundamannvirkja, en til þeirra fara 688 milljónir enda eru þar flest og stærstu mannvirkin," segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. „Sérstök áhersla er lögð á regnþéttingu ytra byrðis fasteigna og er það framhald verkefna sem unnið var að á síðasta ári. Einnig verður lögð áhersla á málun innanhúss.

Meðal helstu verkefna eru endurgerð þaks Austurbæjarskóla, ný utanhússklæðning Árbæjarskóla, þakviðgerðir og ýmsar endurbætur á Breiðholtsskóla, endurnýjun þaka og  þakglugga á Hagaskóla og í Hlíðaskóla hefst 1. áfangi í endurgerð kennslustofa.  Þá verður útveggjaklæðning á Ingunnarskóla endurbætt, þök verða endurnýjuð á leikskólunum Nóaborg, Fálkaborg og Mýri.  Jafnframt verða ýmis konar endurbætur gerðar utanhúss á leikskólunum Arnarborg og Bakkaborg.  Ytra byrði Ráðhússins verður háþrýstiþvegið og sílanbaðað.

Í mörgum fasteignum verða gerðar ýmsar endurbætur vegna eldvarna og víða verða brunaviðvörunarkerfi endurnýjuð. Loftræstikerfi verða víða endurbætt eða endurnýjuð."