Fjöldi starfandi á þriðja ársfjórðungi 2008 var um 183.800 manns eða 81,7%.

Á vinnumarkaði voru um 188.500 manns sem jafngildir 83,8% atvinnuþátttöku.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands þar sem í dag eru birtar tölur um atvinnuþátttöku og atvinnuleysi á 3. ársfjórðungi 2008.

Þá kemur fram að atvinnuþátttaka karla var 88,2% og kvenna 79,0%.

Til þeirra sem eru á vinnumarkaði teljast bæði þeir sem eru starfandi og atvinnulausir. Fólk telst vera starfandi ef það hefur unnið eina klukkustund eða meira í viðmiðunarviku könnunar eða verið fjarverandi frá starfi sem það gegnir að öllu jöfnu.

Á þriðja ársfjórðungi 2007 voru um 184.700 á vinnumarkaði og atvinnuþátttaka mældist 84,1%. Atvinnuþátttaka karla var 88,2% og kvenna 79,6%.