Hagnaður Straumborgar ehf. á fyrri helmingi ársins nam 4.452 milljónum króna samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar. Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir samstæðunnar í lok  tímabilsins 42.965 milljónum króna, bókfært eigið fé í lok tímabilsins var 16.710 milljónir króna, arðsemi eiginfjár á ársgrundvelli 88% og eiginfjárhlutfall 38,9%.

Straumborg ver eigið fé sitt í evrum en gerir upp reikninga sína í krónum. Hafði styrking krónunnar á fyrri hluta ársins því neikvæð áhrif á arðsemi félagsins í krónum talið.


Straumborg ehf. er eignarhaldsfélag en tilgangur þess er m.a. fjárfestingar og eignarhald á hlutabréfum og þátttaka í öðrum atvinnurekstri. Gert er samstæðuuppgjör fyrir Straumborg og dótturfélög. Stærsta eign
samstæðunnar er í Kaupþingi banka.

Í tilkynningu kemur fram að rekstrarskilyrði Straumborgar hafa að mestu leyti verið afar hagfelld á fyrri
hluta ársins.

Þar kemur einnig fram að rekstur Straumborgar gengur vel og gera forsvarsmenn Straumborgar ráð fyrir að
rekstrarniðurstöður ársins verði vel viðunandi. Horfur á þeim mörkuðum sem félagið starfar á eru að mestu leyti hagstæðar og rekstur allra félaga innan samstæðunnar er á áætlun segir í tilkynningu. Hafa verður þó í huga að rekstur fjárfestingafélags eins og Straumborgar er háður óvissu, svo sem þróun fjármálamarkaða og ýmsum öðrum þáttum sem eru ekki á valdi félagsins.