Samkvæmt tölum frá Keflavíkurflugvelli fóru tæplega 2 milljónir farþega um völlinn á nýliðnu ári. Þetta er um 8,8% fækkun á milli ára.

Þetta kemur fram á vef Ferðamálastofu.

Þar kemur fram að hlutfallslega er meiri fækkun í hópi áfram- og skiptifarþega (transit) en meðal farlega á leið til og frá landinu.

Þannig voru komu- og brottfararfarþegar samtals 1.746.023 talsins sem er næst mesti fjöldi frá upphafi og um 7,3% fækkun frá fyrra ári.

Sjá nánar á vef Ferðamálastofu.