Nýskráningar ökutækja á fyrstu 23 skráningardögum ársins er samtals 193 ökutæki en á sama tímabili í fyrra voru 1806 ökutæki nýskráð hér á landi.

Þetta er 89,3% fækkun nýskráninga milli ára.

Þetta kemur fram á vef Umferðarstofu en hafa skal í huga að hér er um að ræða nýskráningu og eigendaskipti allra ökutækja ekki bara bifreiða.

Fækkun á sér einnig stað í fjölda eigendaskipta en þó er hún ekki eins mikil og í nýskráningum. Eigendaskipti ökutækja á sama tímabili eru 3751 en þau voru 5639 á sama tímabili í fyrra. Hlutfallsleg lækkun eigendaskipta nemur því 33,5% milli ára.