Heildareignir Seðlabanka Íslands námu 895 milljörðum króna í lok febrúar og lækkuðu því um 44,5 milljarða í mánuðinum.

Af heildareignum námu innlendar eignir 78,3 milljörðum og lækkuðu um 631,9 milljónir. Erlendar eignir námu 816,7 milljörðum og lækkuðu um 43,9 milljarða í febrúar.

Skuldir Seðlabankans hækkuðu um 10,2 milljarða króna og námu 890,6 milljörðum í lok febrúar. Þar af námu innlendar skuldir 841,3 milljörðum en erlendar skuldir námu 49,2 milljörðum króna.