Skráð atvinnuleysi í janúar 2010 var 9% eða að meðaltali 14.705 manns og eykst atvinnuleysi um 6,7% að meðaltali frá desember eða um 929 manns.

Þetta kemur fram á vef Vinnumálastofnunar en á sama tíma á árinu 2009 var atvinnuleysi 6,6%, eða 10.456 manns að jafnaði.

Atvinnuleysið er 9,5% á höfuðborgarsvæðinu en 8,1% á landsbyggðinni. Mest er það á Suðurnesjum 14,5% en minnst á Vestfjörðum 3,4%.   Atvinnuleysi eykst um 7,4% meðal karla en um 5,7% meðal kvenna.  Atvinnuleysið er 9,9% meðal karla og 7,9% meðal kvenna.

Þá kemur fram að alls voru 16.382 atvinnulausir í lok janúar.  Þeir sem voru atvinnulausir að fullu voru hins vegar 13.424, af þeim voru 1.569 í einhvers konar úrræðum á vegum Vinnumálastofnunar, auk þess sem mikill fjöldi fer í ráðgjafarviðtöl og á kynningarfundi.

Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.